Arndís og Hulda eru vinkonur sem skrifa stundum saman bækur. Yfirleitt hafa þær ekki hugmynd um það hvor skrifaði hvað!

Hulda Sigrún Bjarnadóttir
Hulda lærði sálfræði og bókasafnsfræði og er búsett í Reykjavík. Hulda á tvær dætur, einn mann og tvo ketti. Hulda byrjaði að skrifa skáldskap á ensku og fjórar unglingabækur eftir hana komu út undir höfundanafninu Rune Michaels hjá bandaríska bókaforlaginu Simon & Schuster. Bækurnar heita Genesis Alpha, The Reminder, Nobel Genes og Fix me.
Unglingabækurnar hennar Huldu hafa komið út á ensku, þýsku, frönsku, portúgölsku, hebresku, kóresku og mandarín.
Verðlaun og viðurkenningar:
- Tilnefning (short list) til Green Earth Book Award 2012 fyrir Fix Me.
- Belgísku verðlaunin Prix Farniente 2010 fyrir Genesis Alpha
- Frönsku lesendaverðlaunin Gayant Lecture 2010 fyrir Genesis Alpha
- Genesis Alpha var valin á lista borgarbókasafns New York borgar yfir bestu unglingabækurnar 2008
Arndís Þórarinsdóttir
Arndís er með háskólapróf í bókmenntafræðum og ritlist.
Hún á mann, tvö börn og nokkrar rykkanínur sem halda til undir rúminu hennar. Hún býr líka í Reykjavík og hefur skrifað og þýtt bækur í nokkur ár. Það má lesa meira um það allt saman á vefsíðunni arnd.is.
Verðlaun:
- Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022 fyrir Kollhnís
- Fjöruverðlaunin 2023 fyrir Kollhnís
- Barnabókaverðlaun Reykjavíkur 2023 fyrir Kollhnís
Hún er yfirleitt svolítið glaðlegri en á þessari mynd.


Samvinnan
Þegar við kynntumst árið 2005 bjó Hulda í Danmörku og Arndís í Bretlandi, en nú búum við báðar í Reykjavík.
Nokkrum árum síðar ákváðum við að gera tilraun. Við vorum góðar vinkonur og báðar rithöfundar – væri ekki sniðugt að prófa að skrifa sögur saman?
Það var sniðugt! Við skemmtum okkur konunglega við að skrifa hvor annarri bréf í nafni ýmissa skrýtinna persóna. Úr urðu margar skemmtilegar sögur, en við fullunnum þær sjaldnast.
Sumarið 2019 ákváðum við að þetta gengi ekki lengur, við yrðum að klára heila bók.
Við skrifuðum báðar svolítið á hverjum einasta degi allt sumarið. Um haustið löguðum við söguna til og sendum svo Blokkina á heimsenda inn í samkeppnina um Barnabókmenntaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur.
Sagan okkar hreppti verðlaunin og fékk síðar fleiri viðurkenningar – þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020. Hún hefur nú komið út í Danmörku, Hollandi, Rússlandi og Þýskalandi og er væntanleg í Finnlandi.
2023 kom út næsta bók eftir okkur, Mömmuskipti.
Sameiginlegt netfang okkar er arndis.huldasigrun@gmail.com.