Morð og messufall kom út sumarið 2025. Forlagið gefur út.
Sif hefur einföld markmið í lífinu. Hún vill bara halda foreldrum sínum á – eða að minnsta kosti nálægt – mottunni og hreppa prestsembætti svo hún geti tryggt syni sínum örugga framtíð. Fyrsta atvinnuviðtalið eftir útskriftina úr guðfræðinni endar þó með ósköpum þegar þau séra Reynir ganga fram á lík í altariströppunum. Í óðagotinu sem fylgir er Sif ráðin í tímabundið starf kirkjuvarðar og einsetur sér að sanna sig svo hún hljóti prestsvígslu í kjölfarið. En organistinn er hættur í fússi, bókhaldið er í óreiðu og í ofan á lag virðist piltur úr ungmennastarfinu vera horfinn sporlaust. Hvað í ósköpunum var hinn látni, Kormákur Austfjörð, sérlegur aðstoðarmaður Reynis, að bralla á elliheimili hverfisins? Og hversu mörg boðorð er eiginlega hægt að brjóta í einni og sömu kirkjunni?
Morð og messufall er fyrsta skáldsaga okkar beggja ætluð fullorðnum.
Glæpsamlega fyndin saga um óborganlegar persónur. Gat ekki lagt hana frá mér.
Jónína Leósdóttir
Hér eru yndislegar persónur, bráðfyndnir orðaleikir og dásamleg kímni en jafnframt spenna og áhugaverð og flókin flétta þar sem margt kemur á óvart í lokin.
Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna.
Sagan er í léttari kantinum fram yfir miðju en síðan tekur alvaran jafnt og þétt við og undir lokin er um harðsvíraðan krimma að ræða. Í stuttu máli er Morð og messufall skondin gamansaga með alvarlegu ívafi.
Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðið.
